top of page

DAGSKRÁ 2024

Hádegistónleikar í Hrísey

Sæborg, Hrísey

17. ágúst, kl. 12.30
Miðaverð: 2.500 kr.

Sem hluti af danshátíð Hríseyjar heldur Klassík á eyrinni stutta og laggóða hádegistónleika í félagsheimilinu Sæborg. Hér geta ólmir dansarar á danshátíðinni komið sér í gírinn með því að hlusta á nokkrar gersemar eftir góðkunna kappa eins og Jóhann Sebastian Bach og Antonín Dvorák. Einnig hljóma stuttar og skemmtilegar kaprísur eftir Frakkann Philippe Hersant. Flytjendur eru Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, Sólveig Steinþórsdóttir, Rannveig Marta Sarc og Anna Elísabet Sigurðardóttir. Aðgangseyrir er 2.500 kr. og öll hjartanlega velkomin! Kaupa má miða í anddyri og á tix.is.

Philippe Hersant: Ellefu kaprísur fyrir fiðlu og selló 

 

J.S. Bach: Fimmtán invensjónir (útsettar fyrir fiðlu og selló)

 

Antonín Dvorák: Strengjakvartett í F-dúr, Op. 96 “ameríski kvartettinn”

Flytjendur

Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla

Rannveig Marta Sarc, fiðla

Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, selló

Samtöl
Beethoven, Brahms og Caroline Shaw

Glerárkirkja, Akureyri

17. ágúst, kl. 19.30

Miðaverð: 4.500 kr.

Á þessum kvöldtónleikum í Glerárkirkju hljóma þrjú verk frá afar ólíkum tímabilum. Tónleikarnir hefjast á yngiskvartett eftir Ludwig van Beethoven en svo er stokkið fram í nútímann og mun þá hljóma kvartett eftir ameríska tónskáldið Caroline Shaw.  Tónleikarnir bera yfirskriftina Samtöl en þar er sérstaklega átt við samtalið á milli fyrstu tveggja verkanna á efnisskránni. Shaw dregur beinan innblástur úr verki Beethovens: heyra má oft sömu hendingar og sama glaðhlakkalega karakter í báðum verkum. Síðasta verk efnisskrárinnar er af öðrum toga en raunar má segja að það sé enn í samtali við meistarann Beethoven. Jóhannes Brahms lifði alltaf undir skugga Beethovens og heyra má áhrif hans í þessum dramatíska og ástríðufulla píanókvartett sem Brahms samdi síðla á ævi sinni. Hægt verður að kaupa miða í anddyri og á tix.is.

Ludwig van Beethoven: Strengjakvartett í B-dúr, Op. 18/6

Caroline Shaw: Blueprint fyrir strengjakvartett

Johannes Brahms: Píanókvartett í c-moll

Flytjendur

Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla

Rannveig Marta Sarc, fiðla

Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, selló

Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanó

Schumann & Dvorák
Lokatónleikar í Hofi

Hamrar, Hof á Akureyri

18. ágúst, kl. 16.00

Miðaverð: 4.500 kr.

Lokatónleikar hátíðarinnar fara fram í Hömrum í Hofi og endar hátíðin á tveimur sigursælustu og ástsælustu kammertónverkum sem skrifuð hafa verið. Antonín Dvorák tók fræga ferð til Ameríku undir lok 19. aldarinnar og komst þar í kynni við tónlist vesturálfunnar. Hann var gífurlega impóneraður af amerískri alþýðutónlist og í sínum fræga “ameríska” strengjakvartett, sem hann samdi í ferð sinni, fléttar hann þessa tónlist saman við alþýðutónlist heimalandsins Tékklands. Hinn hægi annar kafli er einstaklega minnisstæður og á að geyma eina fergurstu laglínu sem Dvorák nokkurn tímann samdi. Lokaverkið er svo ekki síður glæsilegt en píanókvintett Róberts Schumann er gjarnan talinn besti píanókvintett sögunnar. Hann er í jöfnu mæli kröftugur, dramatískur, innilegur og sigrihrósandi og spannar allt litróf tilfinninganna. 

Antonín Dvorák: Strengjakvartett í F-dúr, Op. 96 “ameríski kvartettinn”


Robert Schumann: Píanókvintett í Es-dúr, Op. 44

Flytjendur

Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla

Rannveig Marta Sarc, fiðla

Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla

Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, selló

Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanó

bottom of page